23.7.2008 | 21:03
Á leið minni upp í Djúpagil
Á leið minni upp í Djúpagil í gær varð þessi stóri steinn á vegi mínum. Steininn lá ofan á þrem eða fjórum litlum steinum í hallanum, það var eins og bjargið hefði verið lagt beint ofan á uppraðaða smásteinana. En auðvitað hafði bjargið ekki komið af himnum heldur fallið svona snyrtilega í jarðskjálftanum 29.maí.
Náttúran er söm við sig ótrúlega flott.
Vefurinn | Breytt 27.7.2008 kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2008 | 20:37
Kvöldsólin var yndisleg í Kópavogi um helgina.
Ég gisti tvær nætur í Kópavogi um helgina þegar flestir fóru úr bænum fór ég þangað og naut kvöldsólarinnar með útsýni yfir Faxaflóann. Myndirnar tala sínu máli.
Vefurinn | Breytt 27.7.2008 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2008 | 14:44
Sólin var stórkostleg í gær
Ég var að veiða í Flóanum í gær skúrir voru af og til allt í kring skýjafarið var því stórkostlegt.
Ég sólbrann að venju en man ekki eftir að hafa brunnið á höndunum fyrir ofan þumalfingur áður
Nokkrar myndir eru komnar inn úr veiðiferðinni og fleiri á næstunni
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
bali
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 121
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar