Færsluflokkur: Vefurinn
26.11.2009 | 18:19
vindur í stráum og sól við strönd
Það var vindur í stráum og sól við við strönd.
þar voru skip að veiðum við sólarrönd.
Vinur minn veifaði komið var kvöld.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 20:58
Lauf í dyngjum
Haustlaufin sópast saman í dyngjur
lægðir leiða þau saman
í föla en skarpa litadýrð
meðan birtan lofar
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2009 | 20:54
Lita haust
Haustin eru falleg hér á fróni
þrátt fyrir rigningu og vos.
Fagrir litir birtast í minkandi ljósi og fókusinn verður skarpur á skjön.
Blæbrigði litanna með ljósi
verður sá hvíti jafn vel snemmbúið haust
án þess að hann frjósi.
Haustin eru heillandi
í mynd
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2009 | 10:05
Blik í Perlunni
Bali fór inn í Perluna og rakst þar á ljósmyndasýningu frá Blik ljósmyndaklúbbi frá Suðurlandi. Bala fannst raunverulega blik í lofti þegar hann sá um það bil 100 myndir með breytilegu ljósi Perlunnar. Birtan í myndunum og staðsetning gerir það að verkum að þær eru hver annari betri og ótrúleg fjölbrettar. Fararstjóri sem var á svæðinu með ferðamenn átti bara eitt orð til að lýsa tilfinningum sínum frábært að geta sýnt ferðamönnum landið svona fallegt.
Ferðamennirnir sögðu landið ykkar er undravert og fallegt tóku fullt af myndum af upphengdu myndunum og spurðu hvort hægt væri að kaupa þær ? Sýningin stendur uppi í 10 daga.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2009 | 11:26
Vinur við ströndina
Í gær hitti ég gamlan vin minn við ströndina. Þegar hann kom út úr híbýli sínu andaði hanna að sér og sagði að frelsið fælist í angan sjávarloftsins. Við fórum niður á bryggju að venju það var útfall, fuglinn synti á milli skerjanna það stirndi á sjóinn og ilmurinn varð sterkari. Æðurin synti milli þara og hleina með stálpaða unga sína og var á varðbergi vegna vargsins. Eftir góða stund á bryggjunni fórum við á annan stað þar sem við gátum horft á hafið, það heillar okkur báða enda fyrrum sjómenn.
Sá gamli fór glaður á sinn stað
Vefurinn | Breytt 18.7.2009 kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2009 | 11:44
Blóm í bæ
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2009 | 09:36
fífill
Fífill vorsins baðar sig í sólinni þessa daga gulur og friðsamur. Sumum finnst hann fagur og róandi öðrum finnst hann illgresi og rífa upp með rótum. Mér finnst gulur fífil fallegur stór og blómstrandi, það er liturin. stundum eru fléttaðar úr honum hálfestat og hárskraut, þá er sumarið komið.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2009 | 11:48
Spegill
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2009 | 17:18
Vorið í Bærum er ljúft
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.4.2009 | 17:18
Álftin sig ver
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
bali
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 121
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar